A Treatise of Human NatureA Treatise of Human Nature eða Ritgerð um mannlegt eðli er rit eftir skoska heimspekinginn David Hume, sem kom út á árunum 1739–1740. Hume samdi Ritgerðina í Frakklandi 26 ára gamall. Þótt margir fræðimenn telji nú Ritgerðina vera mikilvægasta rit Humes og eitt mikilvægasta rit í sögu heimspekinnar hlaut hún ekki góðar viðtökur í Bretlandi í upphafi. Hume sjálfur lýsti viðtökunum þannig að bókin hefði „fallið dauð úr prentvélinni“. Hume vildi vita hvort Ritgerðin hlyti góðar viðtökur og ef svo yrði ætlaði hann að ljúka við verkið með því að auka við Ritgerðina bækur um stjórnmál og samfélagsgagnrýni. Það gerði hann ekki vegna þess hvernig verkinu var tekið. Þegar Hume hafði komist að þeirri niðurstöðu að vandi Ritgerðarinnar væri stílfræðilegur fremur en boðskapur hennar endurvann hann hluta efnisins í Rannsókn á skilningsgáfunni. Sú bók naut ekki heldur mikilla vinsælda en var þó betur tekið en Ritgerðinni. Efni ritsins er eftirfarandi:
Ritgerð um mannlegt eðli er nú laus undan höfundarrétti. Tengt efni![]() Á Wikiheimild er að finna texta sem tengist
Heimild
Information related to A Treatise of Human Nature |
Portal di Ensiklopedia Dunia