Martröð á Álmstræti 3: DraumastríðsmennA Nightmare on Elm Street 3: Dream Warriors (ísl. Martröð á Álmstræti 3: Draumastríðsmenn) er bandarísk hrollvekjumynd frá 1987 og þriðja myndin í myndaflokknum. Myndin var samin af Wes Craven, Bruce Wagner, Frank Darabont og Chuck Russell og leikstjóri myndarinnar er Chuck Russell. Með aðalhlutverkin fara Heather Langenkamp, Patricia Arquette (í sínu fyrsta hlutverki), Craig Wasson og Robert Englund. SöguþráðurKristen Parker dreymir undarlegar martraðir um eitthvað yfirgefið hús og drungalegan mann með hnífa fyrir fingur sem ræðst að henni en þegar hún vaknar er hún með skurði á úlnliðunum og foreldrarnir leggja hana á Westin Hills-geðspítalann í umsjón Dr. Neils Gordon. Hún hittir aðra krakka Joey Peterson, sem getur ekki talað; Taryn White, fyrrverandi fíkill; Roland Kincaid, sem á við hegðunarvandamál að stríða; Phillip Anderson, bíldhöggvari; Jennifer Caulfield, sem langar að verða leikkona; og Will Stanton sem er í hjólastól. Þau hafa öll dreymt sömu martraðirnar og ekkert þeirra þorir að sofa. Nancy Thompson kemur á Westin Hills sem nemi og uppgötvar að þau eru síðustu Álmstrætisbörnin og Freddy ætlar að drepa þau til að hefna sín á foreldrum þeirra. Hún kemst að því að þau hafa öll draumakrafta og reynir að fá þau til að nota þá til að sigra Freddy. Leikarar
ViðtökurMyndin fékk töluvert betri dóma en Nightmare 2 og er talin ein af betri myndunum í syrpunni á eftir fyrstu myndinni. Information related to Martröð á Álmstræti 3: Draumastríðsmenn |
Portal di Ensiklopedia Dunia