A Star Is Born (kvikmynd frá 2018)
A Star Is Born er bandarísk rómantísk dramamynd frá árinu 2018 sem Bradley Cooper framleiddi og leikstýrði. Myndin er frumraun hans sem leikstjóri. Handritið var samið af Cooper, Eric Roth og Will Fetters. Í aðalhlutverkum eru Cooper, Lady Gaga, Dave Chappelle, Andrew Dice Clay og Sam Elliott. Myndin fjallar um tónlistarmann (leikinn af Cooper) sem glímir við alkóhólisma og verður ástfanginn af yngri söngkonu (leikin af Gaga). Þetta er þriðja endurgerðin á myndinni frá 1937, en hinar endurgerðirnar eru frá 1954 og 1976. Kvikmyndatökur hófust á Coachella tónlistarhátíðinni í apríl 2017. A Star Is Born var frumsýnd á 75. árlegu Kvikmyndahátíðinni í Feneyjum þann 31. ágúst 2018. Og var svo frumsýnd í kvikmyndahúsum í Bandaríkjunum þann 5. október 2018 af Warner Bros. Pictures. Myndin sló í gegn og þénaði yfir 436 milljónir Bandaríkjadala um allan heim og hlaut lof fyrir frammistöðu Coopers, Gaga og Elliotts og leikstjórn Coopers, auk handrits, kvikmyndatöku og tónlistar. Myndin hlaut fjölda viðurkenninga, þar á meðal átta tilnefningar á 91. Óskarsverðlaunahátíðinni, meðal annars fyrir bestu mynd, besta leikara (Cooper), bestu leikkonu (Gaga) og besta leikara í aukahlutverki (Elliott); myndin vann verðlaun fyrir besta frumsamda lagið fyrir „Shallow“. Myndin hlaut einnig fimm tilnefningar á 76. Golden Globe-verðlaunahátíðinni, þar á meðal fyrir Best Motion Picture – Drama og vann verðlaun fyrir besta frumsamda lagið fyrir „Shallow“. Hljómplata kvikmyndarinnar seldist í meira en sex milljónum eintaka um allan heim og vann fjögur Grammy-verðlaun af sjö tilnefningum, þar á meðal tilnefningar fyrir lag ársins tvö ár í röð. Aðalsmáskífa plötunnar, „Shallow“, er eitt mest selda lag allra tíma. Fyrir leik sinn og framlög til tónlistar myndarinnar varð Gaga fyrsta konan í sögunni til að vinna Óskarsverðlaun, Grammy-verðlaun, BAFTA-verðlaun og Golden Globe-verðlaun á einu ári. Leikarar
HeimildirFyrirmynd greinarinnar var „A Star Is Born (2018 film)“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 24. júní 2023. Tilvísanir
TenglarInformation related to A Star Is Born (kvikmynd frá 2018) |
Portal di Ensiklopedia Dunia