Obscured by Clouds
Obscured by Clouds er sjöunda plata Pink Floyd byggt á tónlistinni sem þeir sömdu fyrir myndina La Vallée. Platan var gefin út í Bretlandi 3. júní, 1972 af Harvest/EMI og svo í Bandaríkjunum 15. júní af Harvest/Capitol. Platan komst í 6. sæti á breska vinsældarlistanum og í 46. sæti á þeim bandaríska. Árið 1986, var tónlistin gefin út á geisladisk í fyrsta skipti. Svo aftur 1996 í stafrænni endurupptöku. „Free Four“ var fyrsta Pink Floyd lagið til að fá góða spilun í Bandaríkjunum, og fyrsta til að hafa eitthvað að gera með Eric Fletcher Waters, pabba Roger Waters. Titillagið, eitt af „ósungnu“ lögunum á plötunni, var spilað á flestum tónleikum Pink Floyd á þessum tíma, oftast opnunar lagið. Lagið „Childhood's End“ er byggt á sögu Arthur C. Clarke með sama nafni. Lög
Smáskífur
Information related to Obscured by Clouds |
Portal di Ensiklopedia Dunia